11.02.1943
Efri deild: 55. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í B-deild Alþingistíðinda. (437)

132. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1943

Gísli Jónsson:

Með því að ég tel fullar sannanir liggja fyrir um það, að sú aðferð, sem tekin var upp á Alþ., að ganga á snið við stjórnarskrána, hafi bakað Alþ. vantraust þjóðarinnar og orðið til tjóns, og með því að ég tel skylt að halda fast við formið, segi ég nei.