18.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (44)

Rannsókn kjörbréfa

Aldursforseti (IngP):

Ég sé mér ekki fært að bera upp till. á annan hátt en að bera upp að vísa til kjörd. þeim meintu misfellum, sem átt hafi sér stað á kosningunni í Snæf. Mér skilst, að það geti orðið deildar meiningar um, hvað á að rannsaka. Vill ekki meiri hluti kjörd. skýra, hvað hann meinar. Ég skora á hv. frsm. að koma fram með till.