25.11.1942
Sameinað þing: 3. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í B-deild Alþingistíðinda. (453)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Fjmrh. (Jakob Möller):

Það kom mér dálítið á óvart, að mál þetta var tekið á dagskrá nú. Ég þarf kannske ekki að gera grein fyrir því. En mér var alls ekki kunnugt um það, að fundur yrði nú í sameinuðu Alþ., hvað þá, að fjárl. yrðu tekin á dagskrá, fyrr en ég var kominn á fund. Hafði ég því ekki með mér plögg þau, er ég annars hefði haft, svo sem yfirlit yfir tekjur og gjöld það sem af er þessu ári.

Vil ég því heldur, að málið verði tekið af dagskrá að þessu sinni og ákveðin verði umr. um það síðar, sem má gjarnan mín vegna vera á morgun.