29.01.1943
Sameinað þing: 17. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í B-deild Alþingistíðinda. (488)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Forseti (GSv):

Það er nú komið að þeim tíma, þar sem ætlazt var til, að umr. yrði lokið í kvöld, en út af síðustu orðum hv. 8. þm. Reykv. vil ég benda á það, að till., sem komið hafa fram við umr. eða nálægt umr. fjárl., hafa verið teknar jafnóðum og sjálfkrafa til athugunar af hv. fjvn. Sú regla hefur verið talin föst. Annars skil ég afstöðu hv. þm. og mun taka hana til greina, að því leyti sem ég sé mér fært.