17.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. 3. kjördeildar (Einar Olgeirsson):

3. kjördeild hefur athugað kjörbréf háttv. þm. í 2. kjördeild. Öll kjörbréfin lágu fyrir í frumriti. Kjördeildin fann ekkert athugavert við þau og leggur til, að þau séu samþ.