18.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í B-deild Alþingistíðinda. (51)

Rannsókn kjörbréfa

Aldursforseti (IngP):

Ég vil taka fram út af þessari áskorun, að ég tel mér ekki heimilt að taka fram fyrir hendurnar á meiri hl. kjörbréfadeildar með því að bera upp í tvennu lagi till., sem hún hefur borið upp sem eina heild. Þar að auki er till. þannig orðuð, að ekki er hægt að bera hana upp í tvennu lagi nema orðalagi hennar sé breytt.