18.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í B-deild Alþingistíðinda. (53)

Rannsókn kjörbréfa

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. —

Ég held, að hæstv. forseti ætti að nota vald sitt til að bera till. upp. Meiri hl. hefur borið hana fram og óskar eftir að sjá. hvaða fylgi hún hefur innan þingsins. Það er ósk meiri hl., að þessi lygasaga verði rannsökuð til fulls. Ég er ekki á sama máli og hv. 7. þm. Reykv., get vel greitt atkv. um till. eins og hún er, af því að hún fer fram á, að málið verði rannsakað til hlítar. Ég óska því, að till. verði borin upp og þetta málþóf látið niður falla, sem vissulega er orðið lengra en sæmd hv. Alþingis leyfir.