03.02.1943
Sameinað þing: 20. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í B-deild Alþingistíðinda. (532)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Eysteinn Jónsson:

Ég álít, að eðlilegt væri að hækka eitthvað fjárveitingu til þessa bókasafns. En með því að hv. 1. flm. þessarar brtt. (ÞG) er einn að fjvnm., en hefur ekki í þeirri n. flutt till. um að breyta þessum lið, áður en hann gerir það með þessari brtt., þá vil ég bara láta í ljós, að mér líkar ekki slík vinnubrögð, og segi því nei.