03.02.1943
Sameinað þing: 20. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í B-deild Alþingistíðinda. (538)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Finnur Jónsson:

Einn fjvnm., sem er flm. að þessari till., er einnig flm. að annari í till. um fé til hins sama á þskj. 269, mun lægri upphæð en hér. Ég vildi gefa honum tækifæri til að skýra frá, hver breyt. hefur orðið á þessu máli, síðan hann gerðist flm. fyrri till., og segi því nei.