12.02.1943
Sameinað þing: 25. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (617)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1943
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. — Ég tek hér til máls aftur af þeim sökum, að er ég talaði seinast, hafði ekki verið útbýtt brtt., sem ég óskaði eftir að segja nokkur orð um, og lét ég því bíða að mæla með öðrum brtt., er ég stend að.
Brtt. þessi er varabrtt. á þskj. 425 við brtt. fjvn. á þskj. 387, um hrossaræktarbú á Bessastöðum. Till. okkar er um, að veruleg breyt. verði á þeirri brtt. Í fyrsta lagi er lagt til, að styrkurinn til þessa verði 50 þús. kr., og í öðru lagi lagt til, að bú þetta verði stofnsett við bændaskólann á Hólum í Hjaltadal.
Ég og aðrir, er flytjum þessa brtt., höfum mikið til okkar máls í þessu efni. Leyfi ég mér að benda á, að á Búnaðarþ. 1942 bar einmitt þetta mál á góma. Vil ég leyfa mér að lesa upp, með leyfi hv. forseta, einróma samþykkt þessa þ. varðandi þetta atriði:
„Búnaðarþ. mælir með því, að komið verði upp kynbótabúi að Hólum, í því formi, sem gert er ráð fyrir í erindi hrossaræktarráðunauts, svo framarlega sem slíkt tilraunabú að Hólum hlýzt að geta verið fullnægjandi þáttur í þeirri rannsóknar- og tilraunastarfsemi, sem erindi tilraunaráðs búfjárræktar gerir ráð fyrir, að komið verði á stofn.“
Ég hygg það tvímælalaust, að leið Búnaðarþ. sé skynsamlegri leið en hin leiðin, sem lagt er til, að farin verði í þessu máli. Það liggur í augum uppi, að stofna á slíkt bú í sambandi við búnaðarskóla landsins, heldur en að vera að ætla því stað á ríkisstjórasetrinu á Bessastöðum, þar sem skilyrði eru auk þess alls ekki eins góð og á Hólum. — Ég hygg reyndar, að óþarft sé að fara um þetta mál mörgum orðum, því að þessi leið okkar í málinu sameinar það tvennt, að í fyrsta lagi er um heppilegri stað að ræða, og í öðru lagi er um 100 þús. kr. minna framlag að ræða.
Ég vil og leyfa mér að benda á, að af hálfu flm. er litið á þessa brtt. sem upphaf þess, er koma skal, og að lengra verði haldið seinna, þegar einhver árangur hefur komið í ljós og á einhverju er hægt að byggja af þeim hagnýtu tilraunum, er kunna að fást í starfsemi sem þessari.
Þá vil ég fara nokkrum orðum um XVIX. till. á þskj. 410, þar sem lagt er til, að úr till. fjvn. sé fellt úr „úr hópi sinna félagsmanna“, en þessi till. stendur í sambandi við úthlutun styrkja til skálda, rithöfunda og listamanna. Með brtt. okkar á listamönnum að vera heimilt í stað þess að úthluta styrkjunum sjálfir að kjósa sér menn utan sinna vébanda, sem þeir svo fela að úthluta þessum styrk.
Mig furðar á því, að till. fjvn. skuli líta dagsljósið eins og hún er úr garði gerð, þar sem hún ber það með sér, að allt annað en hreinar hvatir ligg ja til hennar.
Það hefur verið tilgangur Alþ. með styrkveitingum til listamanna þjóðarinnar, að með þeim væri Alþ. að heiðra þá fyrir unnin störf á sviði listarinnar, að þessir styrkir væru eins konar heiðurslaun til þeirra, sem yrðu aðnjótandi styrkjanna. Þessi laun hafa ætíð komið beint frá Alþ. eða þá um hendur Menntamálaráðs. En að fá listamönnunum það sjálfum í hendur til þess að skipta styrkjunum sín á milli brýtur algerlega það „princip“, sem gilt hefur, og auk þess finnst listamönnunum þetta vera mjög óviðfelldið, að ætla þeim sjálfum að skipta fénu. Því höfum við nokkrir þm. lagt til, að úr brtt. fjvn. verði fellt það atriði, er gerir listamönnunum skylt að útdeila styrkjunum milli sín sjálfir.
Þá hef ég ásamt öðrum hv. þm. flutt aðra brtt., á þskj. 419, varðandi úhlutun styrkveitinga til listamanna og er hún því um nokkuð svipað efni. Í þetta sinn hefur verið horfið að því ráði að leggja til að setja nokkra útvalda listamenn inn á 18. gr. fjárl. Má1 þetta var rætt allmikið við II. umr., og var þá brtt. um þetta atriði með nokkuð öðru sniði, eins og hv. þm. geta séð. Þá var lagt til, að 36 listamenn væru teknir inn á 18. gr., en nú er einungis lagt til, að þeir verði 16. — Mál þetta var annars mikið rætt við II umr., og sé ég ekki ástæðu til að vera að endurtaka það, sem ég sagði þá í þessu máli. En það eitt er víst, að þessi brtt. ætti hv. þm. að þykja miklu aðgangsbetri þar sem um er að ræða aðeins þá menn, er hljóta almenna viðurkenningu fyrir að vera í hópi okkar beztu listamanna.
Þá er ég meðflm. að till. um að veita Landssambandi íslenzkra útvegsmanna 20 þús. kr. rekstrarstyrk. Samtök sjávarútvegsmanna eiga víssulega eins mikinn rétt á sér og samtök annarra þjóðfélagsstétta, sem styrkt eru af almannafé.
Ég vil svo aðeins að lokum þakka háttv. fjvn. fyrir, hve vel hún tók undir till. mínar varðandi mitt kjördæmi, og á ég þá sízt við, hvernig hún afgreiddi fjárveitingar til vegamála í héraðinu.
Ég tel svo hvorki tóm né ástæðu til að ræða meira um fjárlagafrv. og breyt. á því yfir jafnfáum hv. þm. og hér eru nú á fundi. En aðalatriðið í sambandi við afgreiðslu þessara fjárlagafrv. sem annarra er, að rík ábyrgðartilfinning sé meðal hv. þm. á því, að slík afgreiðsla er vandasamt og erfitt verk, og einlæg viðleitni þarf að vera fyrir hendi til þess að leysa þetta verk. svo sem bezt má verða með heill alþjóðar fyrir augum.