15.03.1943
Efri deild: 73. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 478 í B-deild Alþingistíðinda. (666)
110. mál, ráðstafanir og tekjuöflun vegna dýrtíða og erfiðleika atvinnuveganna
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Ég skal að því leyti, sem mér er fært, svara fyrirspurnum þeim, sem nú voru fram bornar í sambandi við frv., sem liggur fyrir.
Ég skal strax geta þess, að fjmrn. taldi svo sjálfsagt, að þetta yrði samþ., og dráttur hefur orðið meiri en búizt var við, svo að það voru þegar gerðar ráðstafanir til þess, að þetta gilti frá áramótum, og hefur því ekki verið látið falla niður þrátt fyrir þennan drátt.
Um innflutning á kartöflum skal ég geta þess, að mér er ókunnugt um, hvernig er ástatt nákvæmlega, en hef heyrt síðustu dagana ávæning af því, að kartöflur væru nokkuð til þurrðar gengnar, en það mál hefur ekki komið til kasta þess ráðuneytis, sem ég veiti forstöðu, enda mun grænmetisverzlun ríkisins venjulega hafa talið sig bera ábyrgð á, að séð yrði fyrir nægum innflutningi á þessari vöru. Ef hún hefur hins vegar orðið fyrir meiri örðugleikum en venja er til um slíkan verzlunarrekstur, hefði hún að sjálfsögðu komið til ríkisstj. með vandræði sín, til þess að fá þau leyst. En mér vitanlega hefur hún ekki komið til þessa.
Hvernig kunni að ganga að leysa vandann í sambandi við innflutning á kartöflum, skal ég ekki segja. Erfiðleikar verða e.t.v. á að fá vöruna, auk þess sem talsverðir erfiðleikar verða á flutningi, ef frá Ameríku skal kaupa. Ef hægt er að fá vöruna frá Englandi, sem að sjálfsögðu verður reynt, ef til þess kemur, eru meiri líkur til, að takast megi að greiða úr flutningsspursmálinu.
Um smjörið er það að segja, að dregizt hefur lengur, að það kæmi, en við var búizt í fyrstu. Stafar þetta af því, að miklir erfiðleikar hafa reynzt í Bandaríkjunum á að fá þaðan smjör flutt út. Smjör er ein af þeim vörum, sem Bandaríkjamenn hafa áður framleitt í stórum stíl, en sú framleiðsla hefur dregizt saman mjög mikið. Hins vegar hefur tekizt með talsverðu harðfylgi að fá keypt 50 tonn af smjöri í Bandaríkjunum. Af þessu magni liggja nú tilbúin til sendingar í New York, eftir því sem ég bezt veit, 26 tonn, sem þegar hafa verið greidd. Að öðru leyti hafa verið pöntuð 50 tonn af smjöri frá Suður-Ameríku. Samtals hafa því verið pöntuð 100 tonn af smjöri, og af því liggur einn fjórði tilbúinn til sendingar á skip hingað til lands, eftir því sem ég bezt veit. Ég tel víst, að þessi 50 tonn, sem þegar eru fengin í Bandarikjunum, muni koma bráðlega, ef ekkert kemur fyrir, og bæta úr þeirri miklu smjöreklu, sem nú er. Hvenær smjörið frá Suður-Ameríku kemur, er ekki gott að segja. Miklir erfiðleikar eru yfirleitt á flutningi frá Suður-Ameríku, og þarf að fá sérstakt leyfi frá Bandaríkjamönnum til þess að nota skipakost, sem þeir hafa til flutninga frá Suður-Ameríku til New York. En væntanlega kemur það svo tímanlega, að það geti náð saman við það smjör, sem hefur verið pantað frá Bandaríkjunum og þegar hefur verið fengið leyfi fyrir.