20.11.1942
Sameinað þing: 2. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í B-deild Alþingistíðinda. (68)

Kosning fastanefnda

Jónas Jónsson:

Ég álít, að það skipti ekki miklu máli, hvort þessi n. er kosin deginum fyrr eða seinna, en það er kurteisi í garð manna, sem ekki hafa enn komizt til þings og hafa að undanförnu átt sæti í fjvn., að fresta kosningu n., þangað til þeir eru komnir. Hins vegar er alveg óþarfi að fresta kosningum í d. fyrir það, og vísa ég slíku heim til föðurhúsanna.