24.03.1943
Efri deild: 80. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í B-deild Alþingistíðinda. (786)

116. mál, húsaleiga

Forseti (StgrA):

Ég hef ekki hjá mér þau þingskjöl, sem varða fyrirspurn hv. þm. Barð., og vil ekki á meðan kveða upp úrskurð um þessa till. En munur hygg ég sé á þeim. Hinni fyrri var vísað frá af því, að brott var fallinn sá málsl., sem hún var bundin við, en till., sem þm. Barð. spyr nú um, er ný málsgr. og á við ákvæði, sem eru í frv. Ég mun athuga málið nánar.