09.04.1943
Neðri deild: 94. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í B-deild Alþingistíðinda. (946)

140. mál, dýrtíðarráðstafanir

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. Mér þótti gott að heyra yfirlýsingu hæstv. fjmrh. um það, að hæstv. ríkisstj. muni sætta sig við brtt. á þskj. 705, því að í þeirri yfirlýsingu hlýtur það að felast, að hæstv. ríkisstj. muni líka sætta sig við brtt. fjhn., þó að þær væru samþ. Það hlýtur að verða bein afleiðing af því að það, sem milli ber um þessar brtt., er þannig, að brtt, fjhn. standa nær stjfrv. heldur en þessar till. á þskj. 705.