09.12.1942
Efri deild: 11. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1353 í B-deild Alþingistíðinda. (98)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

Bjarni Benediktsson:

Ég vil aðeins benda á, að hér er um svo mikilsvarðandi mál að ræða, að eðlilegt væri, að slíkar fyrirspurnir væru bornar fram í þinglegu formi, þannig að ráðh. eigi þess kost að vera viðstaddur og svara þeim að athuguðu máli. Ég vil skjóta því til hv. fyrirspyrjanda, hvort hann vilji ekki nota þá þinglegu aðferð.