14.10.1943
Efri deild: 34. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 655 í B-deild Alþingistíðinda. (1007)
96. mál, eyðing svartbaks
Flm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :
Þetta frv., sem við flytjum saman, ég og hv. þm. Str., er ekki stórt að vöxtum. Þessi lög voru fyrst sett 1941, og af fenginni reynslu af þeim þykir sjálfsagt, að þau skuli gilda áfram. Það hefur komið í ljós, að svartbakur hefur horfið úr eggverum og ungafjöldi æðarfugls hefur aukizt. En sums staðar við Breiðafjörð sást varla æðarfugl um skeið. Þessi lög virðast því, það sem af er, hafa náð tilgangi sínum, og vænti ég þess, að hv. deild taki þessu máli vel, og óska, að því verði vísað til 2. umr. og landbn.