22.10.1943
Neðri deild: 36. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 670 í B-deild Alþingistíðinda. (1088)

75. mál, lendingarbætur í Stöðvarfirði

Finnur Jónsson:

Herra forseti. Við höfum athugað þetta mál í sjútvn., og vil ég í fjarveru frsm.hv. 2. þm. S.-M. — geta þess, að við höfum orðið ásáttir um það í n., að frv. verði samþ., og óska, að því verði vísað áfram.