15.11.1943
Efri deild: 48. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 676 í B-deild Alþingistíðinda. (1122)

45. mál, hafnarbótasjóður

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Mál þetta hefur legið fyrir sjútvn. Ed., sem hefur gefið út nál. um það. Frv. hefur tekið allmiklum breyt. frá því að það kom fyrst fram í Nd. En ekki er ástæða til að rekja það hér eða fjölyrða meir um þetta á þessu stigi málsins. N. leggur til, að frv. verði samþ.