01.11.1943
Efri deild: 42. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í B-deild Alþingistíðinda. (1187)

107. mál, brunatryggingar í Reykjavík

Frsm. (Bjarni Benediktsson) :

Allshn. hefur haft þetta frv. til athugunar, og eins og nál. ber með sér, stendur hún óskipt að því að mæla með, að það nái fram að ganga. Það var rædd aths., sem fram kom við 1. umr., en n. þótti ekki ástæða til að breyta frv. af þeim orsökum. Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta mál, það var skýrt við 1. umr., en n. mælir einhuga með því og vonast til, að það verði samþ.