19.11.1943
Neðri deild: 50. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 742 í B-deild Alþingistíðinda. (1342)

135. mál, áveita á Flóann

Sigurður Guðnason:

Herra forseti. Ég kann ekki við annað en gera grein fyrir mínum fyrirvara. Ég fór í gegnum frv. og er sammála n. í aðalatriðum, en í fyrsta lagi hef ég álitið, að lönd, sem ríkið ætti, ætti ekki að selja. Þá hefur svo æxlazt til, að þessar smáspildur hingað og þangað er ekki hægt að nytja, og eru þær til erfiðleika fyrir nágrannabændur. Ég greiði því atkv. með þessu, en álít annars, að þar, sem ríkið á lönd, eigi ekki að selja þau.