19.11.1943
Neðri deild: 50. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 744 í B-deild Alþingistíðinda. (1358)

150. mál, hafnarlög fyrir Keflavík

Frsm. (Sigurður Kristjánsson):

Sjútvn. hefur athugað þetta frv. Breyt. eru aðeins í því fólgnar, að vegna aukinna framkvæmda við höfnina þótti nauðsynlegt að auka bæði fjárveitingu til hafnarinnar og ábyrgðarheimild um 200 þús. kr. hvort. Sjútvn. leitaði álits vitamálastjóra um frv., enda er það flutt samkv. áætlun hans og útreikningum. og lét n. prenta álit hans með nál. Annars er málið einfalt, og n. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.