19.11.1943
Neðri deild: 50. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 744 í B-deild Alþingistíðinda. (1359)
150. mál, hafnarlög fyrir Keflavík
Ólafur Thors:
Ég leyfi mér að nota þetta síðasta tækifæri til að þakka sjútvn. fyrir, hvernig hún hefur tekið á hafnarmálum, sem ég hef flutt og hún afgreitt öll þrjú. Ég átti að vísu ekki von á öðru, þar sem ég hef notið stuðnings vitamálastjóra, okkar ágæta forseta í dag.