11.12.1943
Efri deild: 64. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 813 í B-deild Alþingistíðinda. (1586)

84. mál, ættaróðal og erfðaábúð

Haraldur Guðmundsson:

Ég hef orðið sammála mnm. mínum þrem í landbn. um að mæla með frv., eins langt og það nær. Í l. um erfðaábúð og óðalsrétt eru ýmis atriði, sem ég var og er mjög óánægður með, en sé ekki gagn í að bera fram brtt. um þau efni, því að þær mundu ekki ná samþykki. Þær breyt., sem í þessu frv. felast, eru sennilega allar til bóta, og sé ég enga ástæðu til að vera móti því, að þær út af fyrir sig nái fram að ganga.