23.11.1943
Efri deild: 54. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í B-deild Alþingistíðinda. (1595)
160. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Sjútvn. hefur haft þetta mál til athugunar, og hefur hún sent frv. til hafnarstjórnarinnar í Reykjavík, sem svarað hefur með bréfi dags. 18. þ. m. (nóv.). Leggur hafnarstjórn eindregið til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir, að öðru leyti en því, að hún leggur til, að breyt. frv. séu látnar koma við 2. gr. l., í staðinn fyrir, að þær breyt. komi aftan við 1. og 2. gr. l. Hefur því sjútvn. borið fram brtt. um, að þessu verði þannig breytt. Þetta er engin efnisbreyt. á frv., heldur tilflutningur á málsgr. Í bréfinu frá hafnarstjórninni er sagt, að hún sé samþykk þessu frv. í fullu trausti þess, að Alþ. á sínum tíma veiti fjárframlag úr ríkissjóði fyrir fullum 2/5 hlutum kostnaðar við umræddar framkvæmdir. En eins og sést á grg. frv., þá er hér ekki um annað en heimildarl. að ræða, og fjárveitingar verða að takast upp á hverjum tíma, eins og venjulegt er um slíkar framkvæmdir.
Sjútvn. hafði einnig sent þetta frv. til vitamálastjóra. En hann óskaði eftir að mega hafa málið til athugunar lengur og mega senda álit sitt til sjútvn. Nd. og skyldi umsögn hans vera tilbúin, þegar málið kæmi til þeirrar n. En ég hef áður skýrt frá því, að vitamálastjóri hafi álitið, að það ætti að samþ. þetta frv.
N. sá ekki ástæðu til að gefa út sérstakt nál., þar sem hún flytur frv. En n. leggur eindregið til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.