16.12.1943
Neðri deild: 65. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 830 í B-deild Alþingistíðinda. (1648)
153. mál, alþýðutryggingar
Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Það er það sama um þetta að segja og um næsta mál á undan, að frv. er samið og undirbúið á sama hátt, en fjallar um tvær breyt., sem rétt þykir að gera á alþýðutryggingal., sérstaklega ellitryggingunum. Annað atriði frv. er um, að framlag lífeyrissjóðs verði hækkað upp í 50%, eins og upprunalega var gert ráð fyrir í l., og sé lágmarksupphæð ellilauna eða örorkubóta 120 kr. auk verðlagsuppbótar. Þarf ekki að skýra þetta frekar, enda liggur málið ljóst fyrir, og heilbr.- og félmn. mælir með, að það verði samþ.