11.12.1943
Efri deild: 64. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 860 í B-deild Alþingistíðinda. (1687)

152. mál, alþýðutryggingar

Brynjólfur Bjarnason:

Ég mun greiða atkv. með þessari brtt. hv. 6. þm. Reykv. Ég er á sama máli og hann, að eðlilegast sé að kjósa tryggingaráð með hlutbundinni kosningu, og þótt ekki hafi þótt taka að gera ágreining út af þessu í mþn., þá álít ég samt, að það sé ekki rétt að skipa ráðið á þann hátt, sem gert hefur verið, og í raun og veru leifar frá þjóðstjórnartímanum, þegar þurfti að hafa samkomulag um, hvernig n. skyldu skipaðar. Ég mun því greiða atkv. með þessari till.