16.12.1943
Neðri deild: 66. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 862 í B-deild Alþingistíðinda. (1701)

152. mál, alþýðutryggingar

Finnur Jónsson:

Ég hef spurzt fyrir um það, hvort fundur mundi verða ákveðinn á morgun, og fengið það svar, að svo kynni að fara, að haldið yrði áfram í Ed. í fyrramálið. En það er ekki alveg víst. Óska ég því eftir, að hv. þm. Snæf. taki brtt. sína aftur, til þess að forðast að stofna málinu í hættu.