16.12.1943
Neðri deild: 66. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 862 í B-deild Alþingistíðinda. (1702)

152. mál, alþýðutryggingar

Sigfús Sigurhjartarson:

Ég stend upp vegna umræðna um fund í Ed. í fyrramálið. Það er óvíst, hvort af honum verður. Vil ég taka undir með hv. þm. Ísaf., að tíminn er orðinn mjög tæpur og því hætta á, að mál þetta nái ekki samþykki, ef brtt. hv. þm. Snæf. verður samþ.