23.09.1943
Sameinað þing: 14. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 863 í B-deild Alþingistíðinda. (1706)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Forsrh. (Björn Þórðarson) :

Ríkisstj. var ekki kunnugt um. að þessi fyrirspurn mundi koma fram, en þó að svo hefði verið, er ég ekki viss um, að fjmrh. hefði getað verið viðstaddur, þar sem hann er bundinn við skyldustörf, en ég tel rétt að beina þessari fyrirspurn til fjmrh. Ég mun í þetta skipti leiða hjá mér að svara fyrirspurninni, en mun hins vegar flytja fjmrh. tilkynningu um, hvers spurt er og svo mun hann tilkynna, hvenær hann muni geta svarað. Þetta verð ég að láta mér nægja í þetta skipti.