07.10.1943
Neðri deild: 28. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 872 í B-deild Alþingistíðinda. (1718)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Forsrh. (Björn Þórðarson):

Hv. þm. V.-Sk. mun ekki hafa eða geta búizt við því, að ríkisstj. gæti svarað þessu án frekari undirbúnings. Ég vil því mælast til, að fyrirspurnirnar verði lagðar fram skriflega, og mun ríkisstj. þá svara þeim eftir því, sem föng verða á og tími vinnst til um rannsókn á þessum atriðum.