25.10.1943
Neðri deild: 37. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í B-deild Alþingistíðinda. (1736)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Út af þessum ummælum hv. þm. Ísaf. vil ég taka fram, að þetta mál var til umræðu í lok síðasta þings. Þá lét ég athuga þetta, og síðan hef ég ekkert heyrt um þetta og hugði, að það væri í betra horfi. En sé þetta svo illt sem hv. þm. Ísaf. vill vera láta, þá mun ég gera ráðstafanir þar að lútandi.