26.11.1943
Sameinað þing: 37. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 884 í B-deild Alþingistíðinda. (1766)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Finnur Jónsson:

Ég vænti þess, að útvarpsráð taki til greina þær athugasemdir, sem komið hafa fram í ræðum hv. þingmanna um þetta mál. Það er lítt viðunandi meðferð, sem þessi hátíðisdagur okkar á að sæta skv. frásögnum blaðanna, ef sannar væru. Hvergi er sagt frá tilhögun hátíðahaldanna á sama hátt, hvorki í Morgunblaðinu, Þjóðviljanum né Alþýðublaðinu. Vænti ég þess fastlega, að formaður útvarpsráðs taki þessar athugasemdir til greina.