06.12.1943
Neðri deild: 59. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 884 í B-deild Alþingistíðinda. (1770)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Herra forseti. Ég get upplýst það um þetta mál, að ríkisstjórninni hafði ekki og hefur ekki borizt um þetta nein tilkynning. Það, sem ég veit um málið, er það sama sem hv. 2. þm. Reykv. veit, að ég hef séð það hér í blöðum. Um það að öðru leyti get ég þar af leiðandi ekkert upplýst, hvert svar ríkisstj. hefði verið, ef til hennar hefði verið leitað. Það liggur ekkert fyrir um það, af því að ekkert hefur verið um þetta rætt í ríkisstjórninni.