10.12.1943
Neðri deild: 61. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í B-deild Alþingistíðinda. (1792)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Stefán Jóh. Stefánsson:

Það var aðeins eitt atriði, sem kom fram í ræðu dómsmrh., sem ég vildi gera aths. við. En það var það, þegar hann sagði það sér óviðkomandi, til hvers háskólabyggingarnar væru notaðar. Mér þykir allundarlegt, ef honum þykir hlýða, að þar sé leyft að verja einn málstað, en bannað að verja annan.