24.11.1943
Neðri deild: 53. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (1866)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Áki Jakobsson:

Fyrir tveim dögum bað ég um, að tekið yrði á dagskrá frv. um dýrtíðarráðstafanir, og ég vil enn ítreka þá ósk mína, að það verði tekið á dagskrá á næsta fundi d. Ef meiri hl. er fyrir því í þinginu, að frv. verði ekki rætt, þá er eðlilegt, að það komi fram með atkvgr. þm. Mér finnst ég eiga kröfu á því, að málið verði tekið fyrir á næsta fundi d.