24.11.1943
Efri deild: 55. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í C-deild Alþingistíðinda. (1959)

172. mál, verðlækkunarskattur

forseti (StgrA):

Ég féllst á það við hæstv. fjmrh. að gera tilraun til að hafa fund í þessari hv. d. síðdegis í dag og taka verðlækkunarskattinn til umræðu, þar eð hæstv. ríkisstj. þykir miklu skipta að fá að vita nú þegar um undirtektir þingsins í þessu máli, því að nú líður óðum að þingslitum.

Af þessum ástæðum hef ég boðað fund núna kl. 5, og sé ég mér ekki fært að hætta við hann, úr því að til hans er búið að boða.