17.12.1943
Efri deild: 69. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (1995)

Starfslok deilda

Bjarni Benediktsson:

Ég vildi, áður en fundi er slitið, þakka hæstv. forseta fyrir góða, hlutlausa og drengilega fundarstjórn á þessu þingi og mildi hans í yfirráðum sínum yfir okkur. Og þótt okkur hafi e. t. v. fundizt hann nokkuð vinnuharður, þá fyrirgefst það góðum húsbónda. Hann hefur gætt réttlætis og hlutleysis, og veit ég, að dm. taka undir þakklæti og árnaðaróskir honum til handa.

(Deildarmenn tóku undir þessi orð með því að rísa úr sætum sínum).