16.12.1943
Neðri deild: 66. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (1997)

Starfslok deilda

forseti (JörB) :

Þetta mun þá vera síðasti fundur þessarar hv. d. að þessu sinni. Hæstv. forseti sameinaðs þings mun gefa skýrslu yfir störf þingsins, eins og venja er til, svo ég sleppi því.

Ég vil þakka hv. þdm. fyrir einkar góða samvinnu á þessu þingi, eins og ætíð áður, og hversu þeir hafa ætíð sýnt mér fulla tilhliðrunarsemi og gert mér auðvelt að stjórna störfum deildarinnar.

Ég vil svo óska öllum hv. þdm. gleðilegra jóla og góðs og farsæls komandi árs. Og utanbæjarmönnum vil ég óska góðrar ferðar og góðrar heimkomu.

Megum allir heilir hittast á næsta þingi.