16.12.1943
Neðri deild: 66. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (1998)

Starfslok deilda

Ólafur Thors:

Herra forseti: Ég vil leyfa mér, fyrir hönd allra hv. þdm. að þakka hæstv. forseta fyrir röggsaml., réttláta og ágæta fundarstjórn nú á þessu þingi sem fyrr. Ég óska honum góðrar heimferðar og heimkomu, gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Og ég vona, að við sjáum hann heilan hér skömmu eftir áramótin.

Ég vil biðja hv. þdm. að rísa úr sætum. [Deildarmenn risu úr sætum sínum].