21.04.1943
Sameinað þing: 6. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í D-deild Alþingistíðinda. (2007)

11. mál, samþykki til frestunar á fundum Alþingis

Forseti (GSv):

Eins og tilkynnt hefur verið, hefur einn af þingflokkunum, Sósfl., óskað útvarpsumr. um þessa till., og fara þær nú fram samkvæmt þingsköpum, og verður brátt tilkynnt, í hvaða röð flokkarnir tala, en umr. verður þannig hagað, að hafðar verða tvær umferðir, og hefur hver flokkur til sinna umráða í fyrri umferð allt að ½ klst. og síðari umferð allt að ¼ úr klst. Ef flokkarnir óska að geyma af tíma sínum frá fyrri umferð til síðari, geta þeir gert það, og vitanlega eru flokkarnir ekki skyldugir til að láta tala allan þann tíma, sem þeir hafa til umráða. Áður en tilkynnt verður röð flokkanna, byrjar umr. með þeim hætti, að forsrh. tekur til máls.