21.04.1943
Sameinað þing: 8. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í D-deild Alþingistíðinda. (2201)

14. mál, milliþinganefnd í skattamálum

Flm. (Ásgeir Ásgeirsson) :

Ég skal aðeins geta þess, að það láðist að setja í þáltill., að kostnaður við þessa milliþn. greiddist úr ríkissjóði. En þetta er síðari umr. um þáltill., og þar sem tvær umr. hafa verið ákveðnar um málið, leiðir það af sjálfu sér, að til þess er ætlazt, að kostnaður þessi greiðist úr ríkissjóði.