05.10.1943
Neðri deild: 27. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 332 í C-deild Alþingistíðinda. (2393)

64. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.

Forsrh. (Björn Þórðarson) :

Herra forseti. Ég vil aðeins svara fyrirspurn hv. þm. Hafnf. um það, hvort ríkisstj. hefði borizt í hendur yfirlýsing hinna tvennu fjórtán, sem hann nefndi svo.

Ég vil taka það fram, að þessi yfirlýsing hefur ekki borizt í mínar hendur, og mér er ekki kunnugt um, að hún hafi borizt hinum ráðherrunum.

Annars vil ég fyrir mitt leyti ekki fara út í ræðu þessa hv. þm., en þar komu fram ýmis atriði, sem ég er ekki svo vel kunnugur, að ég vilji fara út í að ræða þau nú.