22.10.1943
Neðri deild: 36. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í C-deild Alþingistíðinda. (2412)

64. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.

Skúli Guðmundsson:

Ég vil af þessu tilefni vekja athygli á, að jafnvel í tvö skipti hefur mál þetta tafizt vegna fjarveru hv. 1. flm. og það síðast í gær, því að þá þurfti hann að fara á bæjarstjórnarfund. Árásir hans á Framsfl. fyrir, að málið hafi ekki fengið afgreiðslu fyrr, eru með öllu óréttmætar, en eins og ég hef þegar bent á, hefur það tafizt nokkuð sökum þess að 1. flm. þess, hv. 8. þm. Reykv., hefur þurft að gegna störfum annars staðar.