11.12.1943
Efri deild: 64. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 420 í C-deild Alþingistíðinda. (2465)

94. mál, hafnarlög fyrir Siglufjarðarkaupstað

Brynjólfur Bjarnason:

Hv. þm. Siglf. hefur tjáð mér, að þær breyt., sem hv. sjútvn. ber fram á þskj. 631, séu nokkru víðtækari en hann hafði gert ráð fyrir eftir samtal við n. Honum hefur ekki unnizt tími til að ræða málið við bæjarstjóra og bæjarstjórn og óskar að fá tækifæri til þess, áður en gengið er til atkv. um þessa till. Vil ég því fara þess á leit, að málinu verði nú frestað.