08.11.1943
Neðri deild: 42. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í C-deild Alþingistíðinda. (2498)

128. mál, iðnskólar

Frsm. (Emil Jónsson) :

Ég get aðeins sagt álit mitt um þetta mál, hvað mig snertir persónulega, því að ég hef ekki haft tækifæri til þess að ræða um það við meðnm. mína, en ég fyrir mitt leyti get sagt það, að það, sem vakti fyrir mér, var, að þetta fé yrði ekki veitt fyrr en eftir því, sem það yrði veitt í fjárl. Ég fyrir mitt leyti get sætt mig við það, að um þetta komi fram skrifleg brtt., hvort sem hún kemur frá n. eða öðrum, þar sem þessu sé slegið föstu. Annars minnti mig, að þetta stæði einhvers staðar í frv., en það má vel vera, að það sé nauðsynlegt að setja það þar til þess að gera ákvæðin um þetta ótvíræð.