11.11.1943
Neðri deild: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í C-deild Alþingistíðinda. (2502)
128. mál, iðnskólar
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 375 tvær brtt. við 5. gr. frv., sem hér liggur fyrir. — 5. gr. er um það, hverjir skuli greiða stofnkostnað og rekstrarkostnað viðurkenndra iðnskóla. Er þar lagt til, að stofnkostnaður, þ. e. a. s. húsnæði, húsbúnaður og áhöld skólans, greiðist að tveim fimmtu hlutum af ríkinu og að tveim fimmtu hlutum af hlutaðeigandi sveitarfélagi, en að einum fimmta hluta annars staðar að. — Brtt. mín, sú fyrri, er um það, að á eftir orðunum „2/5 af ríkinu“ bætist inn í: „eftir því, sem fé er veitt til í fjárlögum“. Þetta er í samræmi við það, sem tekið er fram t. d. í l. um héraðsskóla.
Síðari brtt. mín er um það, að þrjú orð falli niður úr sömu gr., þ. e. orðin „endurbætur og aukningu“ í síðari málsl. 5. gr. frv. En þessi síðari málsliður er um rekstrarkostnað iðnskóla. Er þar sagt, að „af rekstrarkostnaði viðurkenndra iðnskóla greiði ríki og hlutaðeigandi sveitarfélög viðhald, endurbætur og aukningu húsnæðis, húsbúnaðar og áhalda og kaup skólastjóra og kennara að hálfu hvort“. Ég vil láta orðin „endurbætur og aukningu“ falla niður, vegna þess að þegar um aukningu og endurbætur er að ræða, þá er það stofnkostnaður, en ekki rekstrarkostnaður, og gegnir öðru máli um það en árlegan viðhaldskostnað. Endurbætur og aukning kemur því undir fyrri málslið 5. gr., sem fjallar um stofnkostnað, en á ekki heima þarna í síðari málsl. gr.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð, en vænti þess, að þessar brtt. verði samþ. af hv. deild.