06.09.1943
Efri deild: 10. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í B-deild Alþingistíðinda. (251)

30. mál, einkasala á tóbaki

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Út af fyrirspurn hv. 3. landsk. þm. skal ég taka það fram, að þetta atriði hefur ekki verið rætt innan ríkisstj. Ég get því ekki gefið bindandi svar, en sé hins vegar ekkert því til fyrirstöðu, að gert verði það, sem hann hefur minnzt á, að stj. skýri n. innan þingsins frá því, áður en hún hefur framkvæmdir í þessu efni, til hvers féð skuli notað.