06.12.1943
Neðri deild: 59. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í C-deild Alþingistíðinda. (2552)

133. mál, raforkusjóður

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Eitt af þeim málum, sem liggja fyrir óafgreidd hér í hv. d., er frv. til l. um ríkislántöku fyrir. raforkusjóð. Það er 133. mál. Þetta frv. var til meðferðar í hv. fjhn., og 22. nóvember eða fyrir rúmum hálfum mánuði skilaði meiri hl. n. áliti um málið, sem er á þskj. 479. Hins vegar hefur ekki enn komið álit frá minni hl. n. um málið. En þar sem nú er svona langt um liðið, síðan meiri hl. n. skilaði áliti um málið, vildi ég mælast til þess, að hæstv. forseti tæki það á dagskrá næsta fundar, hvort sem minni hl. hefur þá skilað áliti eða ekki.