12.11.1943
Sameinað þing: 29. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í D-deild Alþingistíðinda. (2688)

125. mál, rafmagnsveita Reykjaness

Forsrh. (Björn Þórðarson):

Ég skal aðeins skýra afstöðu mína nánar í tilefni af ræðu hv. þm. G.-K., sem fannst ég gefa of greið svör í þessu máli. Yfirlýsing mín var gefin samkvæmt samtali við hæstv. atvmrh. En ég skal taka það fram, að loforð það, sem ég gaf, var aðeins gefið fyrir hönd núverandi ríkisstj., en ekki þeirrar, sem við tekur eftir þessa, og að því leyti er athugasemd hv. þm. G.-K. algerlega á rökum reist.