29.10.1943
Sameinað þing: 23. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í B-deild Alþingistíðinda. (27)

27. mál, fjárlög 1944

forseti (GSv):

Ég skal geta þess, að telja má víst, ef allt verður eins og til er stofnað, að nál. frá hv. fjvn. um fjárlagafrv. komi fram um helgina og verði útbýtt þegar eftir helgina í hæstv. Alþ. Er svo ráðgert, að framhald 1. umr. fjárlagafrv. fari fram upp úr miðri næstu viku, og líklegt er, að það verði eldhúsumr., en að öðru leyti er ekki um það fullákvarðað, hvernig fyrirkomulag umr. verður. En undinn verður svo bráður bugur að því að ákveða það sem kleift er.